30. maí 2024 kl. 19:15
Íþróttir
Aðrar íþróttir

Jón Þór vann silfur á EM

Skotíþróttamaðurinn Jón Þór Sigurðsson vann silfurverðlaun á Evrópumeistaramótinu sem fer nú fram í Osijek í Króatíu. Jón Þór fékk verðlaunin í keppni með riffli, liggjandi á 50 metra færi, en þetta er í fyrsta skipti sem Íslendingur vinnur verðlaun í greininni á Evrópumeistaramóti.

Jón Þór fékk 628,8 stig eða jafn mikið og Svíinn Jesper Johansson sem fékk brons. Jón Þór endaði betur og annað sætið því hans. Patrik Jany frá Slóvakíu varð Evrópumeistari með 628,8 stig.

Skotíþróttamennirnir Jón Þór Sigurðsson, Patrik Jany og Jesper Johansson sem unnu til verðlauna á Evrópumeistaramótinu í keppni með riffli, liggjandi af 50 metra færi.
Facebook / ÍSÍ