1. júní 2024 kl. 14:52
Íþróttir
Fimleikar

Hópur fyrir EM á hópfimleikum gefinn út

Fimleikasamband Íslands hefur tilkynnt landsliðshópa sína fyrir EM í hópfimleikum 2024. Mótið fer fram í Aserbaídsjan dagana 16. til 19. október næstkomandi. Ísland mætir til leiks með sterkt kvennalið en ekkert karlalið tekur þátt í ár. Þess í stað verður blandað lið fullorðna þar sem sjö karlar og átta konur keppa saman. Þá fer einnig stúlkna og drengjalið með yngri keppendur á mótið. Auk þess tekur blandað lið unglinga þátt.

Stefán Þór Friðriksson

Hópana í heild sinni má sjá hér.

Yfirþjálfarar eru þau Björn Björnsson og Hrefna Þorbjörg Hákonardóttir úr Gerplu. Kvennasveitin varð í öðru sæti á síðasta EM sem fór fram 2022.