3. júní 2024 kl. 11:25
Íþróttir
Handbolti

Gunnar Steinn ráðinn þjálfari Fjölnis

Gunnar Steinn Jónsson hefur verið ráðinn þjálfari karlaliðs Fjölnis í handbolta en Fjölnir tryggði sér sæti í efstu deild í vor. Gunnar Steinn er sjálfur uppalinn í Fjölni lék með liðinu upp yngri flokkana í handbolta og í fótbolta. Hann á að baki langan atvinnumannaferil í Svíþjóð, Frakklandi, Þýskalandi og Danmörku og spilaði 36 landsleiki fyrir Ísland. Hann sneri heim í Olísdeildina árið 2021, lék með Stjörnunni og varð aðstoðarþjálfari Patreks Jóhannessonar í Garðabænum.

Gunnar Steinn Jónsson er þjálfari karlaliðs Fjölnis í handbolta.
Fjölnir