19. júní 2024 kl. 14:37
Íþróttir
Fótbolti

Karólína framlengir við Bayern og verður áfram hjá Leverkusen

Landsliðskonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir hefur framlengt samning sinn við þýska félagið Bayern Munchen til ársins 2026. Í tilkynningu Bayern sem vann þýska meistaratitilinn á síðustu leiktíð kemur fram að Karólína verði aftur lánuð til Leverkusen þar sem hún lék í vetur við góðan orðstýr.

„Við erum mjög ánægð með að Karólína hafi framlengt samning sinn við okkur til ársins 2026. Hún þróaði sinn leik mjög vel í Leverkusen á síðasta ári og átti sterkt tímabil," sagði Bianca Rech, yfirmaður kvennaliðs hjá Bayern, við tilefnið.

Karólína er 22 ára og hefur leikið 41 landsleik fyrir Ísland og skorað í þeim 9 mörk.