Englandsmeistarar Manchester City í fótbolta unnu nágranna sína og erkifjendur í Manchester United í hinum árlega leik meistara meistaranna um Samfélagsskjöldinn í dag. Úrslitin réðust í vítaspyrnukeppni eftir dramatískar lokamínútur í venjulegum leiktíma.
EPA-EFE/ANDY RAIN
Alejandro Garnacho kom Man Utd yfir á 82. mínútu en Bernardo Silva jafnaði fyrir Man City á 89. mínútu og kom leiknum í vítaspyrnukeppni. Allt var jafnt eftir sjö umferðir í vítakeppninni en þá skaut Jonny Evans leikmaður Man Utd yfir markið. Manuel Akanji skoraði úr næsta víti og tryggði Man City skjöldinn.
Leikurinn um Samfélagsskjöldinn markar gjarnan óformlega upphaf nýs keppnistímabils á Englandi. Keppni er hafin í B-deildinni og úrvalsdeildin fer í gang um næstu helgi.