Már Gunnarsson sló Íslandsmetið og varð í sjöunda sæti í 100 metra baksundi á Ólympíumóti fatlaðra í París nú síðdegis. Már keppir í S11, flokki blindra og sjónskertra. Már kom í mark á sjötta besta tímanum í undanrásunum í morgun, 1:11,38 mínútu og komst örugglega í úrslitin. Þar bætti hann sig síðan í morgun og synti á 1:10.21 mín. og bætti eigið Íslandsmet um 15 hundruðustu úr sekúndu. Úkraínumaðurinn Mykhailo Serbin sigraði á nýju heimsmeti, 1:05,84 mínútu.
Íþróttasamband fatlaðra
Thelma Björg Björnsdóttir keppir svo í úrslitum í 100m bringusundi klukkan 17:55. Thelma sem er að taka þátt í sínu þriðja Ólympíumóti syndir í SB5, flokki hreyfihamlaðra.