3. september 2024 kl. 21:43
Íþróttir
Tennis

Zverev úr leik – Sinner vann Tommy Paul

Eitt af stærstu risamótum árs hvers í tennisheiminum er opna bandaríska meistaramótið, US Open. Það fer fram þessa dagana og lýkur um næstu helgi. Nokkur stór nöfn eru þegar dottin úr leik eins og Novak Djokovic og Carlos Alcaraz. Í kvöld bættist svo við annað stórt nafn á þann lista þegar Þjóðverjinn sem situr í fjórða sæti heimslistans, Alexander Zverev, tapaði 3-1 í settum fyrir Bandaríkjamanninum Taylor Fritz í 16 manna úrslitum. Jannik Sinner, efsti maður heimslistans, vann svo Tommy Paul fyrr í dag og mætir Danil Medvedev í átta manna úrslitum.

epa09384759 Alexandar Zverev of Germany in action during the Men's Single gold medal match during the Tennis events of the Tokyo 2020 Olympic Games at the Ariake Coliseum in Tokyo, Japan, 01 August 2021.  EPA-EFE/MAST IRHAM
EPA / EPA-EFE