Víkingur vann FH með þremur mörkum gegn engu í leik liðanna í Bestu deild kvenna í fótbolta. Með sigrinum setur Víkingur pressu á lið Þór/KA sem er í þriðja sæti deildarinnar með 33 stig. Leikurinn er sá fyrsti í annarri umferð efri hluta úrslitakeppni. Þór/KA tekur á móti Val á morgun auk þess sem Breiðablik heimsækir Þrótt.
Víkingur fagna sigri í leiknum um Meistarar meistaranna gegn Val í vor.Mummi Lú
Linda Líf Boama kom Víkingum yfir snemma leiks. Það tók hana einungis um 90 sekúndur að setja mark sitt á leikinn. Shaina Faiena Ashouri tvöfaldaði forskot gestanna á 35. mínútu. Hún gerði svo út um leikinn með sínu öðru marki á 52. mínútu. FH-ingar reyndu allt hvað þær gátu til að minnka muninn en inn vildi boltinn ekki.
Staðan í efri hluta úrslitakeppni í Bestu deild kvenna