Annari umferð Olísdeildar karla lauk í dag þegar Fram og Fjölnir áttust við í Úlfársárdalnum. Framarar voru töluvert sterkari í dag og unnu sannfærandi sigur, 43-28.
Snemma varð ljóst í hvað stefndi því Framarar voru með yfirhöndina allan fyrri hálfleikinn. Þeir leiddu að honum loknum með 11 mörkum, 26-15.
Þann mun voru Fjölnismenn aldrei líklegir til að vinna upp og heimamenn unnu með 15 mörkum.
RÚV / Tomasz Kolodziejski
Fram er þá komið með tvö stig eftir að hafa tapað fyrir FH í fyrstu umferð en nýliðar Fjölnis leita enn að sínum fyrstu stigum í Olísdeildinni.