Tennisáhorfendur frjálsir ferða sinna
Tennisáhugafólk hefur fengið að fara frjálst á leikjum nýverið í ATP og WTA mótaröðunum. Stjórnendur mótanna hafa hægt og rólega prófað nýjar aðferðir til að stýra áhorfendum. Áhorfendur hafa hingað til einungis mátt færa sig um set milli setta. Tennis þykir meðal formföstustu íþrótta heims og alls kyns hegðunarreglur eru til staðar. Nýju reglurnar voru prófaðar í sumar og þykja hafa lukkast vel.
Áhorfendur sem þurfa að fara á salernið, eða sem ætla sér að kaupa veitingar, þurfa nú ekki að missa af hluta leiks. Áhorfendur mega þó ekki vera á hreyfingu allan tímann. Þetta er einungis leyft í fyrstu fimm lotum í hverju setti.
Slakað var enn frekar á reglunum á opna bandaríska meistaramótinu. Á mótinu í ár máttu áhorfendur færa sig um set hvenær sem þeir vildu. Það mót hefur verið þekkt fyrir mikinn skarkala en iðulega er dauðaþögn þegar tennisleikur stendur yfir.