Liverpool endurheimti sjö stiga forystu á Arsenal á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag með 2-1 sigri á Wolves. Arsenal setti smá pressu á Liverpool með sigri á Leicester í gær og minnkaði forystu Liverpool niður í fjögur stig.
AP / Ian Hodgson
Luis Diaz kom Liverpool yfir snemma leiks og Mohamed Salah jók forystuna í 2-0 á 37. mínútu. Á 67. mínútu hleyptu gestirnir svo spennu í leikinn þegar Matheus Cunha minnkaði muninn í 2-1 en það urðu lokatölur.