19. febrúar 2025 kl. 21:37
Íþróttir
Handbolti

Haukar færa sig nær toppbaráttunni

Stjarnan fékk heimsókn frá Haukum í Olísdeild karla í handbolta í kvöld. Stjarnan hóf leikinn vel og hafði forystuna fyrstu átján mínútur leiksins. Þá fóru Haukar í gang og tóku völdin í sínar hendur. Haukar héldu forystunni það sem eftir lifði leiks.

Össur Haraldsson í leik Hauka og Afturelding í Olís deild karla
Össur Haraldsson, leikmaður Hauka.RÚV / Mummi Lú

Össur Haraldsson var atkvæðamestur Hauka með sex mörk.

Haukar sitja í fimmta sæti deildarinnar með 22 stig, þremur stigum frá toppliðum FH og Fram. Stjarnan er í sjötta sæti deildarinnar með 18 stig.