Annar leikur Njarðvíkur og Hauka í úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitil kvenna í körfubolta var leikinn í kvöld. Haukar höfðu betur, 72-90, og staðan í einvíginu er því 2-0.
Haukar sigruðu fyrsta leik liðanna 86-76 og þurfa einn sigur til viðbótar því sigra þarf þrjá leiki til þess að vinna Íslandsmeistaratitilinn.
Fyrsti leikhluti var jafn en Njarðvík hafði þriggja stiga forskot að honum loknum, 22-19. Njarðvík hélt forystunni út annan leikhluta og náði mest tíu stiga mun, 33-23.
Mummi Lú
Haukar náðu yfirhöndinni í þriðja leikhluta og lauk honum með níu stiga forskoti, 48-57. Áfram flugu Haukar og sigruðu að lokum 72-90.