Sjáðu: Stjarnan þurfti vítaspyrnukeppni gegn Kára
Takk í dag!
Þá er bikarátökum dagsins lokið. Þór fór áfram í 8-liða úrslit í gær en í kvöld bættust við Stjarnan, Keflavík, ÍBV, Afturelding og Valur.
Á morgun eru svo leikir KA gegn Fram og Breiðablik gegn Vestra. Breiðablik - Vestri er í beinni útsendingu á RÚV2 klukkan 19:30. Bikarkvöld er á dagskrá beint eftir hann, klukkan 21:25. Þar sýnum við allt það helsta úr sextán liða úrslitunum.
Hér að neðan má svo sjá öll mörk kvöldsins.
Ég þakka samfylgdina í dag. Þangað til næst. -JPÁ.
Stjarnan vann eftir vítaspyrnukeppni
Stjarnan fer í átta liða úrslit en þurfti vítaspyrnukeppni gegn 2. deildar liði Kára. Káramenn geta verið stoltir af frammistöðu sinni í bikarkeppninni í ár. Þeir fóru alla leið í vítaspyrnukeppni gegn liði í efstu deild og unnu Fylki, sem leikur í þeirri næstefstu, í umferðinni á undan.
Benedikt Waren og Adolf Daði Birgisson skoruðu mörk Stjörnunnar. Hektor Bergmann Garðarsson og Mikael Hrafn Helgason skoruðu mörk Kára.
Staðan var jöfn, 1-1, eftir venjulegan leiktíma.
Hér að neðan má sjá allt það helsta úr leik kvöldsins.
Svona var vítaspyrnukeppnin
Emil Atlason - skoraði fyrir Stjörnuna
Finnbogi Llorens - skoraði fyrir Kára
Jóhann Árni Gunnarsson - skoraði fyrir Stjörnuna
Mikael Hrafn Helgason - klúðraði fyrir Kára
Daníel Finns Matthíasson - skoraði fyrir Stjörnuna
Hektor Bergmann Garðarsson - klúðraði fyrir Kára
Baldur Logi Guðlaugsson - skoraði fyrir Stjörnuna
Vítaspyrnukeppni!
Við erum á leiðinni í vítaspyrnukeppni og stemningin í höllinni er gríðarleg. DJ-inn spilar Elli Egils með Herra Hnetusmjör til að gíra menn upp. Nær 2. deildar lið Kára að halda bikarævintýrinu á lífí?
Fyrir áhugasöm má sjá keppni á YouTube rás ÍATV, sem að fékk leyfi frá RÚV til að sýna beint frá leiknum.
Við birtum helstu atvik og vítaspyrnukeppnina strax að leik loknum.
Káramenn jafna!
Káramenn jafna metin í 2-2 þegar það eru einungis þrjár mínútur eftir af uppbótartíma. Allt ætlar um koll að keyra í Akraneshöllinni.
Mikael Hrafn Helgason skoraði markið en skot hans lak fram hjá Árna í markinu eftir langa sókn Káramann. Börkur Bernharð Sigmundsson fann Mikael í teignum.
Það eru einhverjir bikartöfrar inni í þessari höll!
Einungis nokkrum sekúndum síðar fékk Emil Atlason afbragðs færi en Káramenn komu í veg fyrir skotið þegar markið var tómt.
Káramenn leita að jöfnunarmarkinu
Stjarnan leiðir enn 1-2 þegar 112 mínútur eru liðnar. Káramenn hafa átta mínútur til að knýja fram vítaspyrnukeppni.
Adolf Daði með endurtekið efni
Stjarnan er komin yfir eftir 105 mínútna leik í Akraneshöllinni. Adolf Daði skoraði frá nákvæmlega sama stað og með nákvæmlega eins skoti og Benedikt Warén í fyrri hálfleik. Mörkin voru ekki bara keimlík, þau voru nákvæmlega eins.
Káramenn hafa korter til að jafna metin.
Framlenging á Skaganum!
Það er allt í járnum á Akranesi. Framlenging framundan!
Kári jafnar!
Þvílík stemning í Akraneshöllinni. Káramenn jafna metin gegn Stjörnunn Hektor Bergmann Garðarsson og Þór Llorens Þórðarson voru að koma inn á og Hektor skorar skömmu eftir það. Þór átti langskot sem Skagamaðurinn Árni Snær í marki Stjörnunnar varði út í teiginn.
Hektor Bergmann var ekki í vandræðum með að koma boltanum í netið, líkt og faðir hans Garðar Bergmann Gunnlaugsson áður fyrr.
Staðan er 1-1 þegar 19 mínútur eru eftir.
Valsmenn í átta liða úrslit
Valsmenn unnu 2-1 sigur gegn Þrótturum. Mörkin úr leiknum koma hér innan skamms.
Patrick Pedersen og Jónatan Ingi Jónsson gerðu mörk Vals. Aron Snær Ingason skoraði fyrir Val
Mörkin og helstu atvik leiksins má sjá hér að neðan.
Vá! Waren!
Stjarnan er komin yfir gegn Kára í Akraneshöllinni. Benedikt Waren lék inn á völlinn og smurði knöttinn í samskeytin fjær á 41. mínútu.
Káramenn hafa verið nokkuð sprækir og átt tvö hálffæri.
Þróttarar eru búnir að minnka muninn í 2-1 á Hlíðarenda gegn Val. Það eru sautján mínútur eftir af leiknum.
Valsmenn með tveggja marka forskot
Jónatan Ingi Jónsson er búinn að tvöfalda forskot Valsmanna. Staðan er 2-0 eftir 56 mínútna leik.
Það er markalaust í Akraneshöllinni í leik Kára gegn Stjörnunni.
Það styttist í mörkin úr leik Keflavíkur gegn Víking Ólafsvík.
ÍBV skellti KR-ingum
Það er alvöru bikarævintýrisbragur á Eyjamönnum. Þeir unnu KR 2-4 þar sem Omar Sowe, Hermann Þór Ragnarsson og Oliver Heiðarsson skoruðu mörkin. Oliver gerði reyndar tvö. Hann og Omar voru afar hættulegir í dag og Eyjamenn voru afar hættulegir í skyndisóknum.
ÍBV vann Víkinga í 32-liða úrslitum og eru til alls líklegir.
Mörkin úr leiknum má sjá hér að neðan.
Oliver Heiðarsson gerir út um leikinn
Oliver Heiðarsson var aleinn á auðum sjó og þrumaði boltanum í markið. ÍBV leiða því 4-2 þegar komið er í uppbótartíma leiksins. Hann hafði mikinn tíma til að athafna sig eftir að skalli Eyjamanna barst til hans.
Keflvíkingar í 8-liða úrslit
Keflavík er annað liðið sem kemst í 8-liða úrslit eftir 5-2 sigur. Þórsarar eru þar einnig eftir sigur á Selfoss í gær.
Muhamed Alghoul skoraði þrennu fyrir Keflavík og þeir Kári Sigfússon og Ari Steinn Guðmundsson skoruðu hin mörkin.
Kwame Quee og Luis Romero Jorge skoruðu mörk Ólafsvíkinga. Staðan var jöfn, 2-2, í hálfleik.
Mörkin og helstu atvik úr Keflavík má sjá hér að neðan.
Þá eru Valsmenn komnir yfir gegn Þrótturum með marki Patrick Pedersen.
Omar Sowe kemur ÍBV yfir
Eyjamenn eru komnir aftur yfir! Oliver Heiðarsson geystist upp hægri vænginn og fann Omar Sowe í teignum. Hann náði lausu skoti sem lak í gegnum Halldór í marki KR og inn. ÍBV er því 2-3 yfir eftir 82 mínútur.
Sjáðu: Allt það helsta af Skaganum
Hér má sjá allt það helsta af Skaganum er Afturelding vann ÍA 1-0. Benjamin Stokke skoraði mark Mosfellinga með skalla á 61. mínútur. Axel Óskar Andrésson fékk svo beint rautt spjald á 88. mínútu.
KR jafnar!
KR-ingar jafna. Eiður Gauti skallaði boltann inn í teig og Hjörvar í marki ÍBV varði hann fyrir fætur Guðmunds Andra. Hann kom boltanum auðveldlega í netið.
Staðan er því jöfn 2-2 eftir 73 mínútur. Ég get eiginlega lofað því að það verði fleiri mörk í venjulegum leiktíma.
Sowe með svakalegan sprett
Hermann Þór Ragnarsson kemur ÍBV yfir eftir svakalegan sprett Omar Sowe. Hann vann Gabríel Hrannar í kapphlaupi upp hægri vænginn og sendi fyrirgjöf með jörðinni á Hermann. Hermann hafði mikinn tíma til að athafna sig í teignum og kláraði af öryggi.
Staðan er því 1-1 eftir 64 mínútur.
Skagamenn senda markvörðinn fram
Skagamenn leita allra leiða til að jafna og þeir sendu Árna Marinó fram. Hann var nálægt því að skora en inn vildi boltinn ekki. Skömmu síðar var flautað til leiksloka og Aftureldingarmenn því komnir í 8-liða úrslit.
Þór og Afturelding verða því í pottinum þegar dregið verður.
Það lítur allt út fyrir Keflvíkinga fylgi þeim.
Það er búið að flauta leik Vals og Þróttar á. Staðan er markalaus eftir átta mínútur.
Halldór ver og ver
ÍBV hefur verið að banka síðustu mínútur en Halldór hefur varið vel í tvígang. Omar Sowe fékk færi eftir mikla baráttu við Gyrði hjá KR sem gerði vel. Staðan er KR 1 - ÍBV eftir 52 mínútur.
Alex Óskar Andrésson í Aftureldingu var að fá rautt spjald rétt í þessu í liði en það eru tvær mínútur eftir af venjulegum leiktíma. Afturelding leiðir 0-1.
Þá hafa Keflvíkingar leikið vel í seinni hálfleik gegn Víkingi Ólafsvík. Staðan var jöfn, 2-2, í hálfleik en er nú 5-2 eftir 61 mínútu. Kári Sigfússon skoraði á 48. mínútu og Muhamed Alghoul bætti við tveimur mörkum. Hann er því kominn með þrennu.
„Ekkert nema aukaspyrna og rautt“
Staðan er jöfn í hálfleik í leik KR gegn ÍBV, 1-1. Atli Sigurjónsson skoraði fyrir KR og Oliver Heiðarsson fyrir ÍBV.
„Ekkert nema aukaspyrna og rautt,“ Oliver Heiðarsson í viðtali í hálfleik um umdeilt atvik. Aron Þórður Albertsson virtist toga í hann sem aftasti maður þegar Oliver var við það að sleppa í gegn. Það var þó ekkert dæmt.
KR-ingar voru í stuði í upphafi leiks og ógnuðu í nokkur skipti. Eyjamenn vöknuðu þó til lífs eftir markið og hefur hætta skapast fyrir mark KR í nokkur skipti.
Stokke kemur Aftureldingu yfir
Það er komið mark á Skaganum! Norski framherjinn Benjamin Stokke kom Aftureldingu yfir á 61. mínútu. Þetta er hans fyrsta mark fyrir Aftureldingu frá því að hann kom til liðsins.
Það er boðið upp á alvöru hálfleiksmat á Skaganum. Áhorfendur geta nefnilega keypt sér humar. Ekki amalegt það.
Fjör í Keflavík
Kwame Quee kom Ólafsvíkingum yfir á 28. mínútu. Keflvíkingar jöfnuðu metin rétt fyrir hálfleik með marki Ara Steins Guðmundssonar.
Staðan er því 2-2 í hálfleik.
Oliver jafnar
Oliver Heiðarsson jafnar metin fyrir ÍBV með firnaföstu skoti. Þorlákur Breki Baxter gaf á hann utarlega í teignum. Oliver hamraði boltanum uppi í nærhornið og Halldór í markinu kom engum vörnum við.
Þetta var negla. Það er óhætt að segja það. Staðan er því 1-1 eftir 33 mínútna leik.
Atli Sigurjóns kemur KR yfir
Atli Sigurjónsson kemur KR yfir á 29. mínútu með skemmtilegu skoti. Aron Þórður þræðir boltann í gegn og Atli rétt potar í boltann, sem endaði í netinu.
Markalaust í hálfleik á Skaganum
Búið er að flauta til hálfleiks á Akranesi og staðan er markalaus hjá ÍA og Aftureldingu. Það hefur ekki verið mikið um færi en Erik Sandberg komst nærri því að skora fyrir ÍA eftir hornspyrnu.
Orrahríð að marki ÍBV
KR-ingar hafa átt nokkur hættuleg skot á fyrstu tíu mínútum leiksins. Michael Præst átti skot yfir. Skömmu síðar skaut Gabríel Hrannar Eyjólfsson á nærstöngin af afar stuttu færi en Hjörvar Daði Arnarsson varði virkilega vel.
Jóhannes Bjarnason átti hættulegt skot skömmu síðar. Staðan er 0-0 í leik KR og ÍBV eftir 14 mínútur.
Staðan er enn markalaus á Akranesi rétt fyrir hálfleik.
Það er fjör í Keflavík en heimamenn komust yfir með marki Muhamed Alghoul eftir fjögurra mínútna leik. Luis Romero Jorge jafnaði metin á 16. mínútu.
Leikur hafinn í Laugardal og Keflavík
Búið er að flauta leik á í Laugardalnum þar sem KR og ÍBV mætast og í Keflavík þar sem heimamenn taka á móti Víkingum frá Ólafsvík.
Farin í loftið
Hjá ÍBV eru Vicente Valor og Alex Freyr Hilmarsson ekki með. Valor er meiddur og Alex er að eignast barn með konu sinni.
Hjá KR meiddust Luke Rae og Júlíus Már Júlíusson í síðasta leik gegn ÍBV. Ástbjörn Þórðarson og Alexander Helgi Sigurðsson koma inn í byrjunarliðið í stað þeirra. Þá snýr Atli Sigurjónsson aftur eftir meiðsli og Alexander Rafn Pálmason fer á bekkinn. Hann skoraði í síðasta leik gegn ÍBV og varð þar með yngsti markaskorari í sögu efstu deildar, 14 ára og 33 daga gamall.
Leikur hafinn á Skaganum
Við erum lögð í hann á Skaganum. Afturelding stillir upp sterku liði en Magnús Már Einarsson nýtir tækifærið til að rótera örlítið.
Jökull Andrésson og Aron Jóhannsson eru á bekknum og Arnar Daði Jóhannesson fær tækifærið á miðjunni og Sævar Atli Hugason á miðjunni.
Guðfinnur Þór Leósson byrjar hjá ÍA og Baldvin Þór Berndsen einnig. Að öðru leiti stillir Jón Þór Hauksson upp svipuðu byrjunarliði og hefur spilað í deildinni.
Neðri deildar lið enn með
Það eru enn tvö lið úr annarri deild enn með í keppninni. Það eru Víkingur Ólafsvík og Kári.
Þróttur og Keflavík eru einu liðin úr næstefstu deild.
Hin tíu liðin eru úr bestu deildinni en í gær vann Selfoss lið Þórs.
Það verður því hið minnsta eitt lið úr næstefstu deild í pottinum þegar dregið verður í 8-liða úrslit. Það verður spennandi að sjá hvort Ólafsvíkingar, Káramenn, Þróttarar eða Keflavík fylgi með.
Ná Ólafsvíkingar að stríða Keflavík?
Keflavík tekur á móti Víking Ólafsvík í leik sem hefst klukkan 18:00.
Víkingur kom inn í bikarkeppnina í 2. umferð og vann Smára 5-1. Næst lágu Úlfarnir í valnum, 7-1. Báðir andstæðingar liðsins hingað til leika í 5. deild og nú er því komið að alvöru prófraun fyrir Ólafsvíkinga.
Reykjavíkurslagur á Hlíðarenda
Valur tekur á móti Þrótturum í leik sem hefst klukkan 19:15.
Þróttur kom inn í bikarkeppnina í 32 liða úrslitum. Liðið sótti Völsunga heim á Húsavík en Völsungar eru nýliðar í næstefstu deild. Þróttarar lentu 2-0 undir í fyrri hálfleik en náðu að jafna metin í 2-2 og knýja fram framlengingu. Þeir skoruðu svo í uppbótartíma og komust þar með í 16 liða úrslitin.
Valur var ekki í vandræðum með lið Grindavíkur í 32 liða úrslitum. Liðið vann 1-3 sigur.
Tvíhöfði uppi á Skaga
ÍA og Afturelding mætast í Bestu deildar slag dagsins. Sá leikur hefst klukkan 17:30 og beint eftir á taka Káramenn á móti Stjörnunni í Akraneshöllinni klukkan 20:00.
Grannaslagur?
Það mætti í raun segja að þetta sé grannaslagur hjá ÍA og Aftureldingu en það eru 33,2 kílómetrar á milli bæjarfélaganna. Afturelding er því það félag sem er næst ÍA. Það eru 36,8 kílómetra fjarlægð, eins og bíllinn keyrir, til Borganess. Svona fyrir þá sem voru að velta þeim möguleika fyrir sér.
Leiðin í 16-liða úrslit
ÍA vann Gróttu 1-4 í 32 liða úrslitum og Afturelding vann Hött/Hugin 5-0.
Káramenn farið langa leið
Káramenn hafa farið þó nokkuð langa leið í 16-liða úrslitin en þeir leika í 2. deild. Fyrst unnu þeir KFS 7-1. Í annarri umferð vannst öruggur 8-1 sigur gegn Árbæ.
Í 32 liða úrslitum slógu Káramenn svo lið Fylkis út. Það var einn óvæntasti sigur 32 liða úrslitanna. Kári vann 2-1 í leik þar sem þrír Fylkismenn fengu reisupassann.
Endurtekið efni?
Eyjamenn sækja KR-inga heim í annað skipti á stuttum tíma. Liðin mættust fyrir fjórum dögum á Þróttarvelli í Laugardal, þar sem Vesturbæingar hafa gert sig heimakomna. Þá vann KR 4-1 sigur en Eyjamenn voru nálægt því að jafna metin í 2-2 á tímabili. KR-ingar skoruðu tvö mörk undir lok leiks og var því sigurinn að lokum öruggur. Leikurinn var þó nokkuð jafn og má því búast við spennandi einvígi í kvöld.
Spánverjinn Vicente Valor lék afar vel með liði ÍBV sem vann Lengjudeildina á síðasta tímabili. Hann gekk til liðs við KR í vetur og lék fyrstu leiki liðsins í deild og bikar. ÍBV keypti hann hins vegar aftur og hann lék gegn KR í tapleiknum nýverið.
Gengið í bikarnum hingað til
KR vann KÁ 11-0 í 32 liða úrslitum og ÍBV vann 3-0 sigur gegn Víkingum.