24. maí 2025 kl. 15:07
Íþróttir
Fótbolti

Þór/KA vann þriðja sigurinn í röð

Þór/KA vann 1-0 sigur á Stjörnunni í eina leik dagsins í Bestu deild kvenna í fótbolta. Sandra María Jessen skoraði sigurmarkið á 21. mínútu sem tryggði Þór/KA þriðja sigur sinn í röð í deildinni.

Þór/KA vann öruggan útisigur á Víkingum í fyrstu umferð Bestu deildar kvenna 2025.
Þór/KA er einu stigi frá toppnum.RÚV / Mummi Lú

Þór/KA er í fjórða sæti með 15 stig og bara einu stigi frá toppnum. Þar eru þrjú lið jöfn með 16 stig, Breiðablik, Þróttur og FH. Þetta var næst síðasti leikur sjöundu umferðar sem lýkur á morgun með leik botnliðsins FHL og Þróttar sem getur með sigri náð þriggja stiga forystu á toppnum.

Besta deild kvenna