28. maí 2025 kl. 13:13
Íþróttir
EM í fótbolta 2025

Missir af landsleik vegna útskriftar úr Harvard

Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir, landsliðskona í fótbolta, verður ekki með í leik Íslands og Noregs í Þrándheimi á föstudag í Þjóðadeild Evrópu. Hún verður nefnilega í Bandaríkjunum að útskrifast úr Harvard-háskóla

Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir.Mummi Lú

Áslaug Munda útskrifast úr námi í taugavísindum við Harvard-háskóla á morgun. Af þeim sökum getur hún ekki tekið þátt í landsleik Íslands við Noreg á föstudag, en verður hins vegar komin til móts við íslenska liðið þegar það kemur heim til Íslands um helgina. Hún verður því leikfær þegar íslenska landsliðið tekur á móti Frökkum á Laugardalsvelli á þriðjudagskvöld.