TORG listamessa er skipulögð af SÍM, Sambandi íslenskra myndlistarmanna, með stuðningi frá Reykjavíkurborg. Síðasta helgi hennar er runnin upp og fer viðburðurinn fram á Thorsvegi 1 .
SÍM
Um er að ræða einn stærsti kynningar – og söluvettvang myndlistar á Íslandi þar sem 60 listamenn taka þátt. Listamessan er vettvangur þar sem hægt er að kynna sér íslenska samtímalist og kaupa listaverk beint af listamönnunum sjálfum. Þátttakendur koma úr öllum listgreinum SÍM, en þar eru meðal annars til sýnis málverk, skúlptúrar, grafíkverk, ljósmyndir og textíll.