Teiknar andlitsmyndir á bannaðan pappír
Martinj kom fyrst til Íslands árið 1999 og var gestalistamaður á Akureyri. Síðan þá hefur hann komið hingað með reglulegum millibili. Í fyrra ákvað Martinj loks að kaupa sér hús á Íslandi og varð Grenivík fyrir valinu.
Martinj setti færslu á Facebooksíðu Grenivíkur þar sem hann óskaði eftir fyrirsætum. Íbúar tóku vel í þessa hugmynd, 75 manns mættu og létu teiknarann knáa teikna af sér andlitsmynd.
5. apríl ætlar Martin að halda sýningu í gamla skólanum á Grenivík þar sem gestir og gangandi geta komið og skoðað teikningarnar.