Athugið að þessi frétt er meira en 1 árs gömul

Samantekt

Sviss vinnur Eurovision 2024

Júlía Margrét Einarsdóttir og Þorgils Jónsson

,
11. maí 2024 kl. 23:05

Þá er þessu lokið

Hvílíkur dagur og kvöld að baki, sannarlega hæðir og lægðir. Það gekk á ýmsu í Malmö, stigakynnar hættu við þátttöku, Holland var rekið úr keppni og þátttöku Ísrael var mótmælt harðlega á götum úti og í salnum með kröftugu bauli.

En Nemo var virkilega vel að sigrinum komið með þetta dásamlega lag. Menningarvefur þakkar fyrir samfylgdina.

11. maí 2024 kl. 23:04

Hér er sigurflutningurinn

11. maí 2024 kl. 22:54

Íslenskir áhorfendur gáfu Króatíu 12 stig

Svona kusu Íslendingar í kvöld:

Atkvæði áhorfenda 2024
Eurovision / Skjáskot

11. maí 2024 kl. 22:49

Þá er það komið á hreint, Sviss sigurvegari!

Ótrúlega verðskuldað. Svo fallegt lag, magnaður flutningur, mögulega mest sjarmerandi manneskja til að vinna þessa keppni síðan Conchita Wurst.

Þetta er væntanlega smá skellur fyrir Baby Lasagne sem vann áhorfendaatkvæðin þó og getur gengið afar sáttur frá borði. Nú tekur hán lagið á ný og það eru held ég bara allir til í það.

Er þetta fyrsti kynsegin sigurvegari Eurovision?

11. maí 2024 kl. 22:34

Sviss með þvílíka forrystu eftir að dómnefndaratkvæði hafa verið talin

En þetta er ekki búið. Það getur allt gerst þegar áhorfendaatkvæðin hrúgast inn. En hán er ánægt, lagið dásamlegt og flutningurinn magnaður. Nú fáum við að vita hvað áhorfendur höfðu að segja. Þá verða alltaf einhverjar vendingar.

Eurovision
Eurovision / Skjáskot

11. maí 2024 kl. 22:28

Frakkland fær 12 stig frá Íslandi

„Hæ strákar!“ Þannig ávarpaði Friðrik Ómar salinn og skjáinn.

Íslenska dómnefndin gaf Frakklandi 12 stig.

Sviss enn með svakalegt forskot og Nemo hefur heillað dómnefndir um allan heim upp úr skónum.

Friðrik Ómar
Eurovision / RÚV

11. maí 2024 kl. 22:06

Aftur er baulað

Mörg láta í sér heyra þegar ísraelski stigakynnirinn greinir frá stigum dómnefndar þar í landi. Það skyldi engan undra svo sem. Ísrael er í næstneðsta sæti eins og staðan er, þrátt fyrir að hafa verið spáð öðru sæti. Það getur hins vegar allt breyst.

Dómnefndin hins vegar elskar Nemo frá Sviss.

Eurovision
Eurovision

11. maí 2024 kl. 21:57

Það er byrjað að kynna stigin

Og það er strax margt áhugavert. Hér er verið að kynna dómaraatkvæðin, á meðan okkar atkvæði eru talin.

11. maí 2024 kl. 21:56

Það er baulað svo mikið á Martin!

Martin Österdal er hæstráðandi í Eurovision, hinn nýi Jon Ole Sand.

Það er ljóst að það eru Europabbastelpur, strákar og stálp í salnum.

Það er bræði yfir því að Joost hafi ekki fengið að taka þátt enda þykja sakir afar litlar. Þetta er skiljanlegt myndi ég segja, en líklegt að EBU hafi ekki alveg átt von á þessari heift.

Eurovision
Eurovision / RÚV

11. maí 2024 kl. 21:51

Það er talið niður

Þið hafið nokkrar sekúndur!

11. maí 2024 kl. 21:47

Loreen vermir sviðið á meðan þið kjósið

Loreen er fyrsta konan í Eurovision-sögunni til að vinna keppnina tvisvar þegar hún sigraði Eurovision í fyrra.

Það var sjöundi sigur Svía í sögunni og keppnin er nú haldin í Malmö Arena í annað sinn.

Hin sænska Loreen er sigurvegari Eurovision 2023
EBU / Corinne Cumming

Hún er mætt með nýtt lag og skyldi engan undra að hún er lögst í gólfið. Dramað er algjört og hún er enn að syngja um húðflúrin sín.

Þetta er gjörsamlega magnað eins og henni er einni er lagið.

Loreen hefur gefið sig mikið út fyrir að vera baráttumanneskja fyrir mannréttindum og áttu margir von á að hún myndi afþakka að koma fram. Hún lét hins vegar hafa eftir sér að sér þætti sniðganga ekki vera rétta leiðin.

Loreen
Eurovision / SKjáskot

11. maí 2024 kl. 21:43

Tveir íslenskir stigakynnar heiðraðir

Stigakynnir
Eurovision / RÚV

Rétt í þessu voru rifjaðir upp bestu eða allavega skemmtilegustu stigakynnar sögunnar á skjánum. Íslendingarnir voru tveir, þeir Einar Stef Hatari með gimpagrímuna góðu og JAJA Ding dong gæjinn sem var auðvitað leikinn af Hannesi Óla Ágústssyni. Við erum auðvitað stolt af þessu.

Stigakynnir
Eurovision / RÚV

11. maí 2024 kl. 21:32 – uppfært

En þau mættu! Næstum því.

Þó hvorki í holdi en ABBA mætti á svæðið og rifjaði upp Waterloo sem tölvukarakterar. Þá var notast við gervigreind og þau meira að segja fóru með gamanmál.

Smá óhugnaður í þessu en þetta er sannarlega veruleiki sem við þurfum bara að venjast.

Í kjölfarið mættu á sviðið þrjár helstu drottningar Eurovision í gegnum tíðina og tóku undir. Það voru þær Carola sem vann 1992 fyrir Svíþjóð, Conchita Wurst sem vann fyrir Austurríki 2014 og Charlotte Perelli sem vann fyrir Svíþjóð 1999.

11. maí 2024 kl. 21:26

Grátið á diskótekinu

Kynnarnir knáu létu okkur halda það um stund að ABBA væru að koma saman en í stað þess mætti diskósveitin Alcazar og flutti ódauðlegan danssmell.

11. maí 2024 kl. 21:17

Nú skal segja og nú skal kjósa

Hægt er að hringja eða senda sms.

Veldu þitt uppáhalds, eða þín uppáhalds og greiddu leið þíns lands.

Eurovision
Eurovision / RÚV

11. maí 2024 kl. 21:13

Það er reif á sveimi en hver ætlar að leita að því?

Kaleen - We Will Rave

Kaleen er með dansbakgrunn, vann ballettmeistaratitil í heimalandinu sjö ára gömul. Lagið fjallar um að tónlist geti læknað særðar sálir og heilað. Þetta er Austurríki.

Hún segir „we will rave,“ í laginu og á fimmtudaginn var ég ekki sannfærð um að sú fullyrðing væri sönn. En nú er maður ekki frá því, allavega er salurinn til í þetta.

Kaleen, framlag Austurríkis í Eurovision 2024.
EBU / Alma Bengtsson

Hringið í 900-9926 til að kjósa hana.

11. maí 2024 kl. 21:09 – uppfært

Ertu að tala við mig?

Slimane - Mon amour

Hinn franski Slimone syngur óð til Evrópubúa en lagið samdi hann árið 2022 á tónleikaferðalagið. Lagið er um rómantík og ást. Hann er franskur söngvari og lagahöfundur sem vakti mikla lukku í fimmtu seríu The Voice í Frakklandi. Hann hefur verið duglegur síðan og átt um 25 lög á franska vinsældarlistanum. Rödd hans grípur mann algjörlega og flutningurinn er angurvær. Gæsahúð hér á ferð, ekki fara á klósettið.

Þegar hann syngur án undispils...

Ég elska þig, endurtekur Slimane og ég held að flesta langi að segja einfaldlega moi aussie. Ekki reyna að neita því.

Hann segir í lokinn: sameinuð í tónlist, ást og friði.

Slimane, framlag Frakklands í Eurovision 2024.
EBU / Alma Bengtsson

Hringið í 900-9925 til að kjósa hann.

11. maí 2024 kl. 21:07 – uppfært

Sleppið bara að hringja í slökkviliðið

Nutsa Buzaladze - Firefighter

Nutsa frá Georgíu lenti í 12 sæti í American Idol ásamt því að hafa tekið þátt í hinum ýmsu hæfileikakeppnum. Eurovision aðdáandi sem lenti í öðru sæti í Söngvakeppninni 2017. Í laginu tjáir hún sig um neikvæð áhrif stríðs og haturs og viljann til að dreifa boðskap ástarinnar á erfiðum tímum. Hún spyr hvort við séum að byggja upp stórveldi aðeins til að brenna þau.

Plánetan sem brennur í bakgrunni vekur svosem ekki frábær hugrenningatengsl en Greta Thunberg var einmitt stöðvuð af lögreglu, ásamt öðrum mótmælendum fyrir utan Arena í dag.

En þetta var hnökralaus flutningur, allt í ljósum logum og dansinn kveikir í held ég nánast hverjum sem er.

Nutsa Buzaladze, framlag Georgíu í Eurovision 2024.
EBU / Sarah Louise Bennett

Hringið í 900-9924 til að kjósa Nutsu.

11. maí 2024 kl. 21:03 – uppfært

Rim Tim taktu mig með

Baby Lasagna - Rim Tim Tagi Dim

Króatíski Baby lasagne var fenginn inn sem varaskeifa í kringum lokakeppnina í Króatiu sem þýðir að ef einhver keppandi myndi hætta við keppni væri Marco fenginn inn sem var það sem gerðist. Hann var óþekktur í Króatíu í byrjun árs en núna vita allir hver hann er. Marco sagði í gríni að í raun ætti hann að heita Baby pizza því hann elskar pizzu meira en lasagne. Lagið fjallar á góðlátlegan hátt um allt unga fólkið í Króatíu sem er að flytja burt frá landinu í leit að betra lífi.

Það er Eurovision-æði í Króatíu enda hafa margir trú á laginu sem er langhæst í veðbönkum. Það er allt svo kröftugt og gott fyrir þetta.

Mjá köttur, mjálmaðu til baka segir hann. Og maður bara mjálmar. Það er ekkert flóknara.

Þetta er svo kröftugt. Mætti segja að Käärijä hafi gengið svo Baby Lasagne gæti hlaupið.

Baby Lasagna, framlag Króatíu í Eurovision 2024.
EBU / Sarah Louise Bennett

Hringdu í 900-9923 til að kjósa þetta lasagne.

11. maí 2024 kl. 20:57

Galdrar og gjörvilleiki frá Slóveníu

Raiven - Veronika

Raiven hefur reynt þrisvar að komast í Eurovision og það tókst í fjórða sinn. Draumar geta ræst þó þessi virðist ansi martraðakenndur.

Lagið fjallar um konuna sem var sökuð um galdra í slóveníu. Slóvenar eru að syngja í þriðja skipti í röð á eigin tungumáli.

Í laginu er fjallað um galdra og Veroniku sem var dæmd til dauða fyrir að kukla. Má maður aðeins, myndi einhver spyrja. Allavega írski flytjandinn en Raiven verður ábyggilega í skugga háns hjá allra gotneskustu áhorfendunum.

Flottur dans og sviðssetningin mögnuð.

Hin slóvenska Raiven í fyrru undanúrslitum Eurovision 2024.
EBU / Sarah Louise Bennett

Hringdu í 900-9922 ef þú vilt kjósa hana.

11. maí 2024 kl. 20:49

Gervihnattadiska-diskó frá Sviss

Nemo - The Code
Rappópera með trommum. Nemo syngur um hvernig hán hefur lagt mikla vinnu í að finna sjálft sig. Hán upplifði sig hvorki sem konu né mann og leiðinni til að finna sjálft sig hefur tekið ár.

Þessi snúningsdiskur sem minnir svolítið á gervihnattadisk og þessi rödd, þetta er allt að virka. Nemo hafði verið að glíma raddleysi fyrr í vikunni en það er ekki að heyra. Svo getur hán rappað líka?

Fagnaðarlætin eru sturluð, hán hoppar frá rappi í óperu eins og ekkert sé.

Nemo, framlag Sviss í Eurovision 2024.
EBU / Alma Bengtsson

Hringdu í 900-9921 ef þú vilt kjósa hán.

11. maí 2024 kl. 20:45 – uppfært

Svo mikill Kýpur í þessu

Silia Kapsis - Liar

Poppandi popplag, syngur um steríótýpur og glansmyndina sem við sjáum á samfélagsmiðlum. Hún er 17 ára gömul, fædd í Ástralíu og foreldrar hennar eru grískir, pabbinn er söngvari en mamman dansari. Hún kveðst vona að skilaboðin nái til ungra stúlkna og vill koma þeim skilaboðum á framfæri að það sem við sjáum á samfélagsmiðlum.

Það er ljóst að hún er ákveðin í að komast á TikTok og það mun eflaust ganga smurt.

Hún Silia lætur ekki blekkja sig oftar en einu sinni þessi, og vei þeim sem reynir að ljúga að henni.

Silia Kapsis, framlag Kýpur í Eurovision 2024.
EBU / Sarah Louise Bennett

Hringdu í 900-9920 til að kjósa dansinn.

11. maí 2024 kl. 20:40

Galsinn í algjöru hámarki í Armeníu

LADANIVA - Jako

Það var síðast 2009 sem dúett mætti frá Armeníu. Söngkonan er kölluð Jago og lagið heitir í höfuðið á henni. Hún syngur í laginu ég er frjáls, ætla að dansa og þú ætlar að horfa. Fjallar um þegar hún var yngri og henni var sagt hvernig hún ætti að haga sér, klæða sig og vera. Í dag ræður hún sér sjálf. Dúettinn er mjög vinsæll í heimalandinu með yfir milljón hlustanir á mörg af sínum lögum.

Það er svo gaman hjá henni á sviðinu að það er ógerningur að hrífast ekki með. Svona hressa týpan sem þú vilt hitta í teiti en alls ekki festast með í lyftu.

Ladaniva, framlag Armeníu í Eurovision 2024.
EBU / Sarah Louise Bennett

Hringdu í 900-9919 til að kjósa Armeníu.

11. maí 2024 kl. 20:35 – uppfært

„Friður mun ríkja,“ segir portúgalska Iolanda

Iolanda - Grito

Titill lagsins þýðir öskur á portúgölsku. Fjallar um andleg veikindi sem hún glímdi við. Þegar hún var fjórtán ára byrjaði hún að semja textann. Þrátt fyrir að lagið heiti Grito er það aldrei nefnt í laginu.

Maður veit eiginlega ekki hvort maður á að gleðjast eða kuðla sig saman í fósturstellingu og gráta. Sem er ansi lýsandi fyrir stemninguna í kvöld.

„Peace will prevail,“ sagði hún að flutningi loknum. Það vonum við.

iolanda, framlag Portúgals í Eurovision 2024.
EBU / Corinne Cumming

Hringið í 900-9918.

11. maí 2024 kl. 20:32 – uppfært

Engar reglur fyrir strípihneigða

Windows95man - No Rules!

Við keyrum tempóið aftur upp með Finnlandi.

Windows95man er þekktur fyrir fatnaðinn sem hann klæðist. Hann fæddist á plötusnúðagiggi 2013 og hann er þekktur fyrir fatnaðinn sem hann klæðist eða klæðist ekki. Hann hefur farið sem stormsveipur um Finnland síðustu ár. No rules er fyrsta lagið frá honum sjálfum. Hann syngur um að hann vilji engar reglur.

Hér er á ferðinni þrusuflottur dúett, söngur og eitthvað sem hljómar eins og rapp.

Þeir spreyja eldi úr garðslöngu eins og það sé verið að vökva garðinn í helvíti. Þar má allt.

Ef hann vill vera á rassinum, þá er bossi.

Windows95man, framlag Finnlands í Eurovision 2024.
EBU / Sarah Louise Bennett

Hringið í 900-9917 til að kjósa Finnland.

11. maí 2024 kl. 20:28

Eilífðar smáblóm frá Serbíu

Teya Dora - Ramonda

Teya er fædd 1992 í Serbíu og var gríðarlega vinsæl á TikTok í fyrra. Hún syngur um ramonda sem er blóm sem vex í fjöllunum og blómið er tákn vonar í Serbíu. Það er erfitt að finna blómið og það sama gildir um innri styrk.

Þetta er rólegt lag sem treystir á að áhorfendur dáleiðist. Smá vögguvísufílingur, alveg svona lag sem Hafdís Huld gæti sungið og hvert mannsbarn hverfur í draumalandið.

Teya Dora, framlag Serbíu í Eurovision 2024.
EBU / Sarah Louise Bennett

Hringið í 900-9916 til að kjósa hana.

11. maí 2024 kl. 20:24

Mango tango frá Ítalíu

Angelina Mango - La noia

Angelia Mango stígur á svið og það mætti segja að pabbi hennar hafi verið Björgvin Halldórs Ítala. Giuseppe Mango heitinn var oft kallaður konungur tónlistar þar í landi og hún þekkir því sviðsljósið frá því hún var barn. Móðir hennar er lifandi goðsögn sem hefur stigið á svið í Eurovision. Angelina hefur áður reynt við Söngvakeppnina ítölsku og loks er hennar tími kominn. Þetta er í fyrsta sinn í tíu ár sem kona vinnur keppnina ítölsku.

Lagið þýðir leiði og fjallar um að láta sér leiðast, að það sé ekki neikvætt. Það þarf þó enginn að láta sér leiðast við hlustun þessa lags.

Titillinn er í raun leiðindi og það fjallar um að láta sér leiðast. Henni er spáð góðu gengi og þetta er alveg með betri leiðindum sem maður hefur þolað.

Mér leið allavega alls ekki eins og ég væri að ryksuga á meðan Mango var á sviðinu. Það rignir eldi en engum brennisteini.

Angelina Mango, framlag Ítalíu í Eurovision 2024.
EBU / Alma Bengtsson

Hringdu í 900-9915 til að kjósa Ítalíu.

11. maí 2024 kl. 20:20 – uppfært

Tunglsljós, myrkur og ótrúleg rödd

Gåte - Ulveham

Norska hljómsveitin kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 2000 og bandið samanstendur af fimm meðlimum. Þau hafa verið kölluð norski fjársjóðurinn. Gunhild var bara þrettán ára þegar hljómsveitin varð til.

Lagið fjallar um unga þjónustustúlku frá miðöldum sem upplifir mikið óréttlæti en sigrar ill öfl og losnar undir álögum.

Hljómsveitin tók sér tíma til að velta fyrir sér hvort þau vildu taka þátt í aðalkeppninni vegna þátttöku Ísraels en þau ákváðu loks að taka slaginn og mæta til Malmö.

Ævintýri æsku minnar kynslóðar kenndu okkur að fylgja norninni ekki í skóginn, en ég myndi fara hvert sem er með þessari.

Gåte, framlag Noregs í Eurovision 2024.
EBU / Sarah Louise Bennett

Hringið í 900-9914 til að kjósa þau.

11. maí 2024 kl. 20:10

Flott atriði en ekki fyrir sjóveika

Olly Alexander - Dizzy

Olly er söngvari og leikari og mikil stjarna í heimalandi sínu. Hann hefur meðal annars leikið með Dame Judy Dench á sviði og svo söng hann dúett með Elton John á bresku tónlistarverðlaununum. Hann er búinn að vera mjög spenntur fyrir keppninni og kallar hátíðina stórkostleg kaos.

Hann hefur verið kynnir í keppninni í Bretlandi og því þekkir hann sig vel á sviðinu.

Lagið fjallar um þá yfirþyrmandi tilfinningu sem fólk getur fundið þegar ástin læðist inn og lætur heiminn snúasta í hringi. Þetta er diskópopplag sem fer öruggu leiðina. Bretar eiga met í öðru sæti sem þau hafa vermt sex sinnum en þau hafa líka fimm sinnum unnið.

Hvílíkt hæfileikabúnt er þessi maður, að geta dansað, leikið og sungið allt í senn. Takk heimur fyrir menn eins og Olly.

Olly er gríðarlega vinsæll og sjarminn drýpur af honum. Sjón er sögu ríkari.

Olly Alexander, framlag Bretlands í Eurovision 2024.
EBU / Corinne Cumming

Hringdu í 900-9913 til að kjósa Bretland.

11. maí 2024 kl. 20:05

Ta ta takk Grikkir

Marina Satti - ZARI

Þjóðlagatónar skína í gegnum lagið. Söngkona, framleiðandi og lagahöfundur sem segist vera undir áhrifum frá Björk. Hún syngur á grísku og ensku. Marina ætlar aðeins að láta taka sig upp á einni myndavél, frá einu sjónarhorni.

Grískur og arabískur uppruni skín í gegn en það er líka smá balkanhljómur. Mörg spá Grikkjum í toppslaginn í kvöld.

Ætli þau séu að stela þessu TATA af Reykjavíkurdætrum? Svínvirkar allavega.

Marina Satti, framlag Grikklands í Eurovision 2024.
EBU / Alma Bengtsson

Hringið í 900-9912 til að kjósa Grikkland.

11. maí 2024 kl. 20:03 – uppfært

Dons hló að veðbönkum

Dons - Hollow
Einn vinsælasti söngvari letta. Hefur þrisvar tekið þátt í söngvakeppninni í heimalandinu. Í bæði skiptin lenti hann í öðru sæti. Hann segist feginn að hafa ekki komist alla leið fyrr en núna því hann hafi ekki verið tilbúinn fyrr en nú. Fjallar um vonina sem birtist á svo margan hátt og hann vill að fólk haldi áfram að berjast og týni ekki voninni.

Þetta er í fyrsta sinn síðan 2015 sem öll Eystrarsaltslöndin eru í úrslitum. Það kom mörgum á óvart að þau hafi komist áfram á fimmtudag.

Batman gæti verið stoltur af þessum utanáliggjandi magavöðvum.

Flutningurinn er hnökralaus en samanburðurinn við franska lagið gæti reynst honum erfiður.

Dons, framlag Lettlands í Eurovision 2024.
EBU / Sarah Louise Bennett

Hringdu í 900-9911 til að kjósa Lettland.

11. maí 2024 kl. 19:59

Gotnesk myrkrasprengja frá Írlandi

Bambi Thug - Doomsday blue

Bambi thug kom sá og sigraði í vinsældarkosningu á Wiwiblogs þegar lögin byrjuðu að hrúgast inn og því er ljóst að aðdáendur eru hrifnir.

Írland er eina landið sem hefur unnið þrjú ár í röð og hefur ásamt Svíum unnið keppnina sjö sinnum.

Bambi Thug sagði í dag að Ísrael ætti að vera vikið úr keppni fyrir ummæli sem þulur ísraelska ríkisútvarpsins KAN hafði uppi um írska atriðið á undanúrslitakvöldinu.

En hér er hán mætt og neglir sinn flutning eins og háni er lagið. Salurinn kann að meta sína norn og það er ekki að undra.

Kórónu á nornina.

Bambie Thug, írska framlag Eurovision 2024.
EBU / Sarah Louise Bennett

Hringið í 900-9910 til að kjósa nornina írsku.

11. maí 2024 kl. 19:55

Smá falskir en fáránlega svalir

5MIINUST x Puuluup - (nendest) narkootikumidest ei tea me (küll) midagi

Í laginu sameinast tvö ólík bönd en þeim virðist koma afar vel saman. Lagið er flutt á eistnesku sem er í fyrsta sinn síðan 2013.

Þeir syngja um að þeir noti ekki fíkniefni, hafi ekkert gert, lögreglan sé mætt á svæðið en þeir saklausir. Gamli og nýi skólinn sameinast hér á sviðinu.

Ætli þeir séu það? Þeir eru allavega að njóta sín á sviðinu svo það smitast í salinn.

5MIINUST x Puuluup, framlag Eistlands í Eurovision 2024.
EBU / Sarah Louise Bennett

Hringið í 900-9909 til að kjósa þá.

11. maí 2024 kl. 19:51

Salurinn ærist yfir Zorra

Zorra - Nebulossa

Á keppninni á Spáni var sungið hástöfum og hjónin Maria og Mark sem skipa þennan dúett þurftu varla að flytja lagið. Spánverjara elska þetta lag algjörlega. Þau hafa verið gift í tuttugu ár og þau eiga tvö börn. Lagið er um kvenorkuna og að maður eigi aldrei að breyta sér fyrir einhvern annan.

Það er óhætt að segja að undirtaki í salnum. Fólk elskar Zorra.
„Zorra, Zorra, Zorra,“ er allavega hrópað hér svo salurinn yfirgnæfir nánast hina glæsilegu Mariu.

Maria og Mark eru það sem krakkar myndu kalla sambandsmarkmið eða „couple goals“

Nebulossa, framlag Spánar í Eurovision 2024.
EBU / Alma Bengtsson

Hringið í 900-9908 til að kjósa Spán.

11. maí 2024 kl. 19:42

Danssmellur frá Litáen

Silvester Belt - Luktelk

Sylvester Belt er fæddur 1997 og keppti í forkeppni Junior Eurovision 2010 þar sem hann lenti í þriðja sæti og nú fjórtán árum síðar er hann á stóra sviðinu.

Lagið er taktfast, rauður litur allsráðandi.

Silvester Belt, framlag Litáen í Eurovision 2024.
EBU / Alma Bengtsson

Hringið í 900-9907 til að kjósa Sylvester.

11. maí 2024 kl. 19:39 – uppfært

Hvirfilbylur frá Ísrael

Eden Golan - Hurricane

Lagið Hurricane er framlag Ísraela til keppninnar í ár og flytjandi þess er hin tvítuga Eden Golan. 

Það munaði litlu að Ísrael fengi ekki að vera með og skyldi engan undra, sérstaklega í ljósi þess að Rússum var úthýst eftir innrás í Úkraínu.

Margir hafa mótmælt þátttöku Ísrael í keppninni vegna blóðbaðsins á Gaza, þaðan berast skelfilegar fréttir á hverjum degi.

Lögreglan hefur notað piparúða á mótmælendur fyrir utan höllina.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þátttaka þeirra er umdeild þó andstaðan hafi aldrei verið meiri en nú.  Þegar landið var í gestgjafahlutverki árið 2019 myndaðist mikil umræða um réttmæti þess að keppnin færi þar fram. Það ár keppti auðvitað Hatari fyrir Íslands hönd.

Ísrael hafa unnið keppnina fjórum sinnum. Nú er þeim spáð öðru sæti samkvæmt veðbönkum.

Eden Golan, framlag Ísraels í Eurovision 2024.
EBU / Sarah Louise Bennett

Hringið í 900-9906 til að kjósa.

11. maí 2024 kl. 19:34

Lúxemborg

Tali - Fighter

Lúxemborg snýr aftur eftir 31 árs fjarveru.

Tali fangaði algerlega hjörtu áhorfenda í undanúrslitum og þau flugu í úrslit Hún talar ensku, hebresku, spænsku, þýsku og frönsku.

Tali er 23 ára, fædd í Ísrael, fór til Chile og Argentínu og þaðan til Lúxemborgar. Nú býr hún í New York. Hún hefur aldrei séð keppni áður enda aldrei lifað eina síðan.

Mikill eldur og jafnmikill sjarmi í Tali sem á sviðið algjörlega. Hún óttast ekki stóru kattadýrin sem ógna henni á sviðinu, enda eru þau blessunarlega teiknuð og ábyggilega vænstu skinn sem mala ef þau fá smá klapp á kollinn.

Tali, fulltrúi Lúxemborg, í fyrri undanúrslitum Eurovision 2024.
EBU / Sarah Louise Bennett

Hringið í 900-9904 til að kjósa hana.

11. maí 2024 kl. 19:29 – uppfært

Hálfíslenskur gullbarki stígur á svið

Isaak - Always on the Run

Isaak byrjaði ferilinn í X factor í Þýskalandi 2011. Í kjölfarið stofnaði hann fyrirtæki sem starfar í kringum hina ýmsu tónlistarviðburði. Hann mætir með svakalega rödd og syngur um að vera stöðugt á flótta.

Það logar allt í kringum þennan söngvara á sviðinu og röddin hans gerir það líka.

Isaak á íslenska móður og vonast eftir stuðningi frá okkur ættingjum sínum.

Ótrúlegur kraftur í okkar manni.

ISAAK, framlag Þýskalands í Eurovision 2024.
EBU / Alma Bengtsson

Hringið í 900-9903 til að kjósa hann.

11. maí 2024 kl. 19:26

Kvennakraftur frá Úkraínu

Alyona alyona & Jerry Heil - Theresa & Maria

Rapparinn Aliona Aliona og þjóðlega poppsöngkonan Jerry Heil syngja lagið Theresa og Maria. Þær hafa unnið mikið saman síðustu tvö ár og þær sömdu lagið ásamt einum af höfundum lagsins Stefania sem vann 2022.

Nafn lagsins er tilvísun í Maríu Mey og Móður Theresu og fjallar um kvenorkuna, pressuna sem konur verða oft fyrir um að eignast börn, gifta sig og lifa eftir ákveðnum stöðlum. Þær syngja og rappa lagið, Aliona Aliona fékk mikinn innblástur frá Eminem í æsku en áður en hún haslaði sér völl sem rappari starfaði hún sem leikskólakennari.

Þær skila sínu af miklu öryggi sem fyrr. Rappkaflinn er þéttur og söngurinn seiðandi, sviðsetningin algjörlega mögnuð.

alyona alyona & Jerry Heil, framlag Úkraínu í Eurovision 2024.
EBU / Sarah Louise Bennett

900-9902 til að kjósa þær.

11. maí 2024 kl. 19:21

Ógleymanlegir norskir tvíburar

Marcus & Martinus - Unforgettable

Svíar senda núna norskan dans popp-dúett sem er þekktur sem M og M, þeir eru eineggja tvíburar og heita Marcus og Martines.

Lagið Unforgettable hefur gert allt vitlaust í Svíþjóð og er líklegt til vinsælda á dansgólfum. Nú er tækifæri til að rísa úr sæti og hrista sig ærlega með tvíburunum.

Marcus & Martinus, framlag Svíþjóðar í Eurovision 2024.
EBU / Alma Bengtsson

Unglingsstúlkur elta drengina á röndum samkvæmt Gunnu Dís. Marcus er korteri eldri en Martinus. Þeir eru eins klæddir á sviðinu og ógleymanlegir.

900 99 01 til að kjósa þá.

11. maí 2024 kl. 19:16 – uppfært

Símakosning hefst núna

Símakosning hefst fljótt og gilda á móti atkvæðum dómnefndar. Símakosningin hefur aðeins meira vægi en dómnefndaratkvæðin.

Það er ekki hægt að kjósa Holland eftir að þeim var vísað úr keppni.

11. maí 2024 kl. 19:15

Kynnum fagnað

Kynnar keppninnar í ár eru þær Malin Åkerman og Petra Mede. Þetta er í þriðja sinn sem Petra er kynnir keppninnar en hún starfar sem skemmtikraftur, leikkona, dansari og sjónvarpskona í Svíþjóð. Malin er að stíga sín fyrstu skref í Eurovision-heiminum en áhorfendur þekkja hana mögulega af hvíta tjaldinu en hún hefur gert það gott sem leikkona í Hollywood. Malin er fædd í Svíþjóð en ólst upp í Kanada og er nú búsett í Bandaríkjunum.

Þær eru mættar á svæðið keikar og þeim er mikið fagnað.

Kynnar
EBU / Skjáskot

11. maí 2024 kl. 19:06

Þá er þetta hafið

Keppendur eru kynntir til leiks. Þau ganga yfir sviðið og flagga sínum fána. Guðrún Dís Emilsdóttir og Gunnar Birgisson kynna keppnina saman.

11. maí 2024 kl. 18:51 – uppfært

Á ensku og táknmáli

Keppninni er lýst á táknmáli á RÚV2 og hér er hægt að horfa á hana á ensku.

The main feed direct from the shows, in English, can be watched here.

11. maí 2024 kl. 18:48

Ítalska ríkisútvarpið harmar tæknileg mistök

Ítalska ríkisútvarpið, RAI, birti fyrir slysni niðurstöður símakosningar ítalskra áhorfenda á meðan enn var bein útsending frá seinni undanúrslitakeppninni í Eurovision í ítalska sjónvarpinu.

RAI bera fyrir sig tæknilega örðugleika en í niðurstöðum símakosningar Ítalíu kom í ljós að Ísrael tróndi á toppnum í hugum ítalskra áhorfenda og að Eden Golan hefði hlotið 39% greiddra atkvæða.

Viðbrögð á samfélagsmiðlum hafa verið hörð. Birting niðurstöðu símakosninga er óheimil þangað til að keppni lokinni. Ísrael klýfur upp listann í getspám á meðan margir gagnrýna þátttöku landsins í kvöld. Stigakynnar nokkura landa hafa tilkynnt að þau muni ekki vera fulltrúar lands síns í kvöld og því ljóst að ólgan í Evrópu er mikil.

11. maí 2024 kl. 18:35 – uppfært

Lögregla fjarlægir mótmælendur

Enn er mótmælt fyrir utan tónleikahöllina og hefur lögreglan fjarlægt einhverja mótmælendur samkvæmt vef NRK. Þá hefur verið gripið til þess að nota piparúða og uslinn er mikill.

Mótmæli fyrir utan Malmö Arena
EPA / Johan Nilsson

11. maí 2024 kl. 18:00 – uppfært

Käärijä neitar líka að vera stigakynnir

Hinn finnski Käärijä, sem átti að vera stigakynnir Finnlands í kvöld, hefur tilkynnt að hann muni einnig segja sig frá hlutverkinu. Þá fylgir hann fordæmi norska stigakynnisins.

Hann segir frá ákvörðun sinni á Instagram.

Skjáskot af Instagram Käärijä
Skjáskot / Instagram

Frá þessu er greint á vef NRK.

Käärijä keppir fyrir hönd Finnlands í Eurovision 2023.
EBU / Sarah Louise Bennett

11. maí 2024 kl. 17:32

Hér er lagalistinn fyrir kvöldið

Spotify færir okkur öll lögin á einum stað.

Hér er spilunarlistinn sem hægt er að setja af stað áður en herlegheitin nálgast.

11. maí 2024 kl. 17:13 – uppfært

„Til fjandans með EBU,“ segir hollenski þulurinn

Hollenski þulurinn Cornald Maas var ómyrkur í máli í samtali við blaðamenn. „Mér er skapi næst að segja... til fjandans með EBU,“ er það sem hann hefur að segja um umdeilda ákvörðun um að vísa Joost Klein úr keppni. Þetta kemur fram í tísti frá Wiwiblogs:

11. maí 2024 kl. 16:53

„Frjáls Palestína“ segir stigakynnir Noregs sem sagði af sér

Alessandra Mele, sem flutti lagið Queen of the Kings fyrir hönd Norðmanna í Eurovision á síðasta ári, átti að vera stigakynnir Noregs í ár. Hún tilkynnti í dag að hún hefði sagt sig frá hlutverkinu.

Allesandra Mele
EPA / Juan Carlos Hidalgo

Alessandre sendi frá sér yfirlýsingu þar sem hún sagði meðal annars:

„Sameinuð af tónlist", einkunnarorð Eurovision, er ástæðan fyrir því að ég geri tónlist. Núna eru það bara orðin tóm. Það er þjóðarmorð í gangi. Ég bið ykkur vinsamlegast um að opna augu ykkar og hjörtu ykkar og láta kærleikann leiða veginn til sannleikans. Frjáls Palestína.

Hennar í stað mun Ingvild Helljesen kynna stig dómnefndar Noregs í kvöld.

11. maí 2024 kl. 16:41

Keppnislöndin koma þá fram í þessari röð

Röð atriðanna í kvöld hefur verið uppfærð eftir brotthvarf Hollendinga. Hún lítur svona út (eins og staðan er).

  1. Svíþjóð | Marcus & Martinus - Unforgettable
  2. Úkraína | alyona alyona & Jerry Heil - Teresa & Maria
  3. Þýskaland | ISAAK - Always On The Run
  4. Lúxemborg | TALI - Fighter
  5. Ísrael | Eden Golan - Hurricane
  6. Litáen | Silvester Belt - Luktelk
  7. Spánn  | Nebulossa - ZORRA
  8. Eistland | 5MIINUST x Puuluup - (nendest) narkootikumidest ei tea me (küll) midagi
  9. Írland | Bambie Thug - Doomsday Blue
  10. Lettland | Dons - Hollow
  11. Grikkland | Marina Satti - ZARI
  12. Bretland |  Olly Alexander - Dizzy
  13. Noregur | Gåte - Ulveham
  14. Ítalía  | Angelina Mango - La Noia
  15. Serbía | TEYA DORA - RAMONDA
  16. Finnland | Windows95man - No Rules! 
  17. Portúgal | iolanda - Grito
  18. Armenía | LADANIVA - Jako
  19. Kýpur | Silia Kapsis - Liar
  20. Sviss | Nemo - The Code
  21. Slóvenía | Raiven - Veronika
  22. Króatía | Baby Lasagna - Rim Tim Tagi Dim
  23. Georgía | Nutsa Buzaladze - Firefighter
  24. Frakkland  | Slimane - Mon Amour
  25. Austurríki | Kaleen - We Will Rave

11. maí 2024 kl. 16:16 – uppfært

Hollendingar ósáttir við brottrekstur Joosts

Joost Klein. Hollenski keppandinn í Eurovision sem var vísað úr keppni.
EPA / JESSICA GOW

Hollenska ríkisútvarpið harmar brottvísun Joost Klein úr lokakeppni Eurovision. Ákvörðun EBU um að vísa hollenska atriðinu úr keppni sé sláandi og ekki í neinu samhengi við það sem hafi átt sér stað.

Í tilkynningu á vef AVROTROS segir að eftir flutning lagins í undankeppni hafi Klein verið nýstiginn af sviði og á leið inn í græna herbergið svokallaða. Hann hafi ítrekað beðið um að vera ekki myndaður en starfsfólk hafi ekki orðið við þeirri bón.

„Þetta varð til þess að Joost gerði ógnandi hreyfingu í átt að myndavélinni. Joost snerti ekki myndatökukonuna.“

Atvikið hafi svo verið tekið til athugunar af EBU og lögreglunni.

„Í gær og í dag höfum við fundað stíft með EBU og lagt fram margskonar lausnir. Engu að síður ákveður EBU að vísa Joost Klein úr keppni. AVROTROS finnst þessi refsing mjög þung og ekki í samræmi við atburði.“

AVROTROS segist fylgjandi því að fólk sýni af sér góða hegðun en brottvísun sé ekki réttlát málalok.

„Við erum mjög vonsvikin fyrir hönd þeirra milljóna sem voru spennt fyrir kvöldinu. Það sem Joost hafði fram að færa fyrir Holland og Evrópu hafði ekki átt að enda með þessum hætti.“

11. maí 2024 kl. 14:32

Fjölmiðlafulltrúi EBU ver ákvörðunina um að vísa Hollandi úr keppni

Jean Philip De Tender, fjölmiðlafulltrúi EBU, segir að ekki hafi verið hægt að leyfa hollenska keppandanum Joost Klein að halda áfram keppni eftir að hann hafi gerst uppvís að því að brjóta reglur keppninnar.

Í tilkynningu segir hann að sænska lögreglan hafi rannsakað kvörtun frá konu sem vinnur í framleiðsluteymi keppninnar.

„Við umberum ekki óviðeigandi hegðun á okkar athöfnum og erum staðráðin í því að búa okkar starfsfólki öruggt starfsumhverfi. Í þessu ljósi var hegðun Joost Klein gagnvart starfsmanni okkar metin brot á reglum keppninnar.“

11. maí 2024 kl. 14:20 – uppfært

Slimane biður um frið

Franski keppandinn Slimane syngur á sviðinu í Malmö Arena. Hann er hvítklæddur og er á hnjánum.
EPA / Ida Marie Odgaard

Franski keppandinn Slimane flutti stutt ávarp í miðju atriði sínu á generalprufunni. Hann rifjaði upp æskudrauma sína um tónlist og frið.

Hann vísaði í einkennisorð Eurovision um að tónlist sé sameiningarafl.

„Við skulum sameinast í tónlist, en með ást og friði.“

EBU hefur ekki tjáð sig um hvort þessi skilaboð Slimane brjóti gegn reglum Eurovision.

11. maí 2024 kl. 14:05

Írski keppandinn vill að Ísrael verði vísað úr keppni

Bambie Thug, framlag Írlands í Eurovision 2024.
EBU / Sarah Louise Bennett

Bambi Thug, fulltrúi Írlands í Eurovision, segir að Ísrael ætti að vera vikið úr keppni fyrir ummæli sem þulur ísraelska ríkisútvarpsins KAN hafði uppi um írska atriðið á undanúrslitakvöldinu.

Í viðtali við írska ríkisútvarpið RTE kallaði hán eftir því að skipuleggjendur keppninnar myndu taka afstöðu til ummælanna á KAN.

Þar sagði þulurinn meðal annars að í írska atriðinu mætti búast við satanískum táknum og vúdú-dúkkum og að Bambi Thug tali jafnan um Ísrael á neikvæðan hátt.

EBU sagði í tilkynningu að stofnunin hafi haft samband við KAN og ítrekað mikilvægi þess að allir þulir sýndu keppendum tilhlýðilega virðingu.

Bambi Thug sagði að ummælin á KAN kæmu til með að hleypa einn meiri reiði í flutninginn í kvöld. Hán væri reitt vegna þess að sum ríki gætu brotið reglur og samt fengið að keppa.

11. maí 2024 kl. 13:48

Veifuðu Palestínufánum á generalprufunni

Áhorfendur í tónlistarhöllinni í Malmö halda uppi palestínska fánanum.
EPA / ANDREAS HILLERGREN


Þrátt fyrir að bann hafi verið lagt við því að veifa palestínska fánanum í salnum í Malmö ráku ljósmyndarar augun í nokkra slíka á generalprufunni í dag.

Bæði var púað og klappað með ísralelska atriðinu þegar það var flutt.

11. maí 2024 kl. 13:36

Krísufundir í EBU vegna brottreksturs Hollendinga

Krísufundir eru nú hjá EBU, samkvæmt frétt sænska ríkisútvarpsins SVT. Hollenski hópurinn brást harkalega við brottrekstrinum að sögn.

11. maí 2024 kl. 13:12

Fréttavakt hafin frá lokadegi Eurovision

Góðan daginn og velkomin á þessa fréttavakt frá lokadegi Eurovision.

Þó enn sé langt í að fulltrúar landanna stígi á stokk á stóra sviðinu í Malmö hafa orðið allnokkrar sviptingar í morgun og útlit fyrir að enn dragi til tíðinda.

Hollenska atriðinu var vísað úr keppni í morgun og Sviss, Írland og Grikklandi tóku ekki þátt í fánaatriðinu. Írland mætti heldur ekki á æfingu fyrr í dag. Nú hefur Alessandra Mele, sem átti að tilkynna stig Norðmanna sagt sig frá keppninni.

Fylgist með framvindunni hér.