Konurnar ráða ríkjum á Mat og drykk
Helga Haraldsdóttir yfirkokkur á veitingastaðnum Mat og drykk á Granda var ein þeirra sem gagnrýndi það að enginn kona hefði verið í liði gestakokka á hátíðinni í fyrra. Hún ákvað að taka málin í sínar eigin hendur og taka þátt í ár.
Gestakokkurinn á Mat & drykk verður Sonja Kristensen yfirkokkur á veitingastaðnum Kontrast í Ósló. Fyrir utan það að gestakokkurinn er kona, þá eru allir starfsmenn í eldhúsinu konur líka.
Síðdegisútvarpið á Rás 2 fór í heimsókn á Mat og drykk, þar sem hátíðin Food & Fun var rædd, menningin í eldhúsum og ýmislegt fleira.
Þú getur hlustað á viðtalið í spilaranum hér að ofan.